Hlynur Ólafsson Vídó nýr formaður Eyverja FUS
Síðastliðinn föstudag var haldinn aðalfundur hjá Eyverjum FUS þar sem að skipt var m.a. um formann. Fráfarandi formaður var Leifur Jóhannesson sem sest nú í embætti varaformanns en nýr formaður var kjörinn Hlynur Ólafsson Vídó.Ný stjórn Eyverja er skipuð eftirfarandi einstaklingum:
14. Feb. 2012 kl.16:11
Meira
Meira
Uppistand með Ara Eldjárn í kvöld - Allur ágóði rennur til Krabbavarnar Vestmannaeyja
Í kvöld klukkan 20:00 verður uppistand með Ara Eldjárn í Höllinni en það eru Eyverjar félag ungra sjálfstæðismanna sem standa fyrir skemmtuninni.Allur ágóði viðburðarins mun renna til Krabbavarnar Vestmannaeyjum og er þetta í annað skiptið sem að Eyverjar halda styrktarkvöld með uppistandi til styrktar Krabbavörnum Vestmannaeyjum.
Ari Eldjárn hefur slegið í gegn sem uppistandari og er þetta í annað skiptið sem að hann kemur til eyja á vegum Eyverja hér fyrir neðan eru nokkur brot frá uppistandi með Ara.
2000 kr kostar inn í kvöld.
14. Des. 2011 kl.14:34
Meira
Meira
Vestmannaeyjahlaup - Frábært framtak
Ég var þess heiðurs aðnjótandi laugardaginn síðasta að taka þátt í Vestmannaeyjahlaupinu sem var þá haldið í fyrsta skipti og sé ég ekki eftir því. Framkvæmdin og undirbúningur á hlaupinu sjálfu var alveg til fyrirmyndar og þeim sem að því stóðu til mikils sóma. En undirbúningsnefndina skipuðu þau; Magnús Bragason, Sigmar Þröstur Óskarsson, Sæbjörg Snædal Logadóttir, Ása Ingibergsdóttir, Arnar Richardsson, Gyða Arnórsdóttir, Minna Ágústsdóttir, Adda Jóhanna Sigurðardóttir, Magnús Elíasson og Anna Lilja Sigurðardóttir. Auk þessa góða hóps og þeirra fjölskyldu og vina þá komu að hlaupinu fjöldinn allur af sjálfboðaliðum sem stóðu sig með stakri prýði.
11. Sept. 2011 kl.21:00
Meira
Meira
SUS-þing
41. sambandsþing SUS fór fram á Hótel Örk í Hveragerði um liðna helgi undir yfirskriftinni Ísland tækifæranna. Eyverjar fjölmenntu að vanda á þingið og tóku virkan þátt í málefnastarfinu auk alls þess sem í boði er á SUS-þingum.Eitt af hlutverkum SUS-þinga er að velja Sambandi ungra sjálfstæðismanna forystu. Í fyrsta sinn síðan á SUS-þinginu sem haldið var hér í Vestmannaeyjum 1999 höfðu tveir ungir sjálfstæðismenn líst yfir framboði til formennsku nokkrum vikum fyrir þing. Það setti óneitanlega svip á umræðuna fyrir þing og að vissu leiti á þingið sjálft.
Svo fór að lokum að Davíð Þorláksson var kjörinn formaður SUS með 62% gildra atkvæða. Að loknu formannskjöri fór svo fram kosning í embætti 1. varaformanns þar sem Eyverjinn Helgi Ólafsson hafði gefið kost á sér og hlaut hann stuðning 90% þeirra sem kusu. En auk þess þá var Eyverjinn Haraldur Pálsson kjörinn í varastjórn SUS.
Þetta er í fyrsta sinn sem Eyverji hlýtur kosningu þetta framarlega í forystusveit SUS. Eins og kunnugt er var Eyjamaðurinn, og núverandi bæjarstjóri í Reykjanesbæ, Árni Sigfússon kjörinn formaður SUS 1987. En þá hafði hann verið í Heimdalli, félagi ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík, um nokkurra ára skeið.
Eyverjar óska öllum þeim sem kosnir voru í stjórn og varastjórn SUS til hamingju og treysta því að Davíð og Helgi muni leiða SUS farsællega í baráttunni við vinstri stjórnina og hjálpa öðrum forystumönnum Sjálfstæðisflokksins í því verkefni að gera Ísland aftur að landi tækifæranna.
30. Agu. 2011 kl.12:50
Meira
Meira
Úrkynjuð hagstjórn
Á morgun halda Reykvíkingar sína Menningarnótt. Af því tilefni stendur til að tendra ljósin á glerhjúpnum sem umlykur tónlistar- og ráðstefnuhúsið Hörpu – bautasteininn sem sóunarmenn skattfjár, hvar í flokki sem þeir standa, reistu sér. Þó ég verði staddur í höfuðborginni á þessum tíma ætla ég að leggja mig fram um að verða ekki vitni að þessum skrípaleik og verða það mín hógværu mótmæli.Ég hef verið andsnúinn þessari framkvæmd allt frá upphafi. Þó ákvörðunin um að reisa húsið hafi verið tekin á þeim tímum sem ríkissjóður stóð hvað best var þessi framkvæmd alltaf fráleit. En mesta brjálæðið er þó það að ákveðið hafi verið að halda áfram með hana eftir að þjóðarskútan steytti á skeri alþjóðlegs fjármálahruns.
19. Agu. 2011 kl.13:57
Meira
Meira

