Fréttir
Goslokahátíð Eyverja
Eyverjar hafa alltaf verið frekar áberandi um goslokahátíð og það er engin undantekning þetta árið. Fjörið byrjar á fimmtudagskvöld á Volcano café þar sem Eyverjar halda sitt frábæra BarSvar og nú með eldgosaþema, það er því gott að vera með sögu eldgossins á Heimaey á hreinu til að eiga séns. Barsvar hefst tímanlega klukkan 21:00 og eru að sjálfsögðu vegleg verðlaun í boði fyrir sigurlið. Á laugardaginn verður síðan fjörinu haldið áfram en Eyverjar hafa undanfarin ár boðið ungum sjálfstæðismönnum af fastalandinu í heimsókn til sín á Goslokahátíð. Það verður engin breyting á því þetta árið. Aðsjálfsögðu er öllum Eyverjum boðið að taka þátt í dagskránni.
Goslokaskemmtun Eyverja dagskrá:
Kl 12.00 - Hádegismatur í Ásgarði, súpa, brauð og spjall við bæjarfulltrúa okkar
Kl 13.00 - skoðunarferð um eyjuna
Kl 14.30 - Heimsókn í Vesmannaeyskt fyrirtæki
kl:15:30 - Skoðunarferð um Surtseyjarstofu
kl:16:00 - Fylgst með Reimleikum 2010
kl:17:30 - Mæting á Smábátabryggjuna ef fólk ætlar með út í Löngu! -
Hér gerum við kröfu um 18 ára aldurstakmark og kostar 1500 krónur í
ferðina (ath ekki með posa)
kl:18.00 - Byrjað við að ferja fólk útí Löngu þar sem bíður grill,
gítarstemmning, varðeldur og leikir.
Kl 22.30 - Byrjað að flytja fólk tilbaka og stefnan sett á Skvísusund
þar sem verður tjúttað langt framá morgun
*Hvetjum alla til að mæta með lopapeysuna og góða skapið
*Hvetjum alla gítarleikara að mæta með gítar
Frekari upplýsingar um hátíðina er að finna á Facebooksíðu
http://www.facebook.com/event.
Ályktun um ESB
Fyrir liggur að mikil andastaða er við aðildarumsóknina á þingi og ekki síst hjá þjóðinni. Ungir sjálfstæðismenn telja glórulaust með öllu að eyða meiri fjármunum í þetta áhugamál Samfylkingarinnar. Á tímum er stjórnkerfið þarf að einbeita sér að endurreisninni er fráleitt að það sé önnum kafið við þessa umsókn.
Þá skora Ungir sjálfstæðismenn á Landsfund Sjálfstæðisflokksins að taka þetta mál upp og hvetja fulltrúa flokksins á Alþingi til að beita sér í málinu, líkt og þingmaðurinn Unnur Brá Konráðsdóttir hefur gert.
Sjálfstætt og fullvalda Ísland hefur ávallt verið grunnstef sjálfstæðisstefnunnar og mun vera það um alla framtíð.
Meira
Eyverjar harma þátttöku Vestmannaeyjabæjar í stofnfjáraukningu Sparisjóðs Vestmanneyja
Eyverjar, félag ungra Sjálfstæðismanna í Vestmannaeyjum, harma þátttöku Vestmannaeyjabæjar í stofnfjáraukningu Sparisjóðs Vestmanneyja og ítreka ályktun sína frá því í maí 2009.Eyverjar telja það ganga gegn stefnu Sjálfstæðisflokksins að sveitarfélög fjárfesti í fjármálafyrirtækjum sem og öðrum fyrirtækjum. Það er ekki hlutverk sveitarfélaga að leggja einkafyrirtækjum til fjármuni þegar illa árar. Sparisjóður Vestmannaeyja hlýtur að geta fengið núverandi stofnfjáreigendur eða aðra til að leggja fram fé ef um góða fjárfestingu sé að ræða.
Sú ákvörðun að ætla leggja Sparisjóðnum til fé þegar enginn ársreikningur fyrir síðasta rekstrarár liggur fyrir, hvergi hefur komið ram að óháður aðili hafi farið yfir ákvörðunina fyrir sveitafélagið og ekki er ljóst hverjir hagsmunir bæjarfélagsins séu við endurfjármögnun sjóðsins getur vart talist góð stjórnsýsla.
Meira
SumarBarSvar Eyverja
BarSvar Eyverja sló algerlega í gegn fyrir kosningar og því höfum við ákveðið að halda áfram fjörinu í sumar. BarSvar verður haldið á Volcano Café og stefnan er að hafa BarSvar svona um það bil tvisvar í mánuði. Fyrsta BarSvar sumarsins verður á Þjóðhátíðardaginn sjálfan, 17. júní og hefst klukkan 21:00.Meira
Eyverjar skora á Ragnheiði Elínu að bjóða sig fram til varaformanns
Eyverjar, félag ungra Sjálfstæðismanna í Vestmannaeyjum, skora á Ragnheiði Elínu Árnadóttur oddvita Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi að bjóða sig fram til varaformanns Sjálfstæðisflokksins á komandi landsfundi.
Eyverjar telja mikilvægt að forysta Sjálfstæðisflokksins endurspegli þann fjölbreytileika sem einkennir flokkinn. Því er nauðsynlegt að landsbyggðin eigi fulltrúa í forystu flokksins. Það liggur beinast við að sá fulltrúi komi úr Suðurkjördæmi, kjördæminu þar sem Sjálfstæðisflokkurinn er sterkastur eins og sást í nýafstöðnum sveitastjórnarkosningum þegar flokkurinn vann stórsigur víða um kjördæmið og nýtur þar hlutfallslega mest fylgis.
Ragnheiður hefur sem oddviti flokksins í kjördæminu og sem formaður þingflokksins sannað sig sem leiðtogi og öflugur fulltrúi landsbyggðarinnar sem stendur vörð um grunnatvinnuvegi þjóðarinnar og er ötull talsmaður atvinnuuppbyggingar.
Eyverjar telja Ragnheiði réttu manneskjuna til að gegna embætti varaformanns og að hún muni vinna að sókn Sjálfstæðisflokksins um land allt með einstaklings- og atvinnufrelsi að leiðarljósi.
Meira
Úrslitin
Meira
Nýtum kosningaréttinn!
Góð kjörsókn á kosningadag skiptir ekki bara framboð gríðarlegu máli heldur bæjarfélagið í heild sinni. Því fleiri einstaklingar sem láta sig varða um velferð bæjarfélagsins og mæta á kjörstað því betra umboð hefur viðkomandi meirihluti til starfa. Þannig má segja að í raun sé mun meira að marka sannan vilja bæjarbúa fyrir stjórnsýslu ef fleiri kjósa. Það að ákveða að sitja heima og láta aðra um að ákveða fyrir sig hverjir munu stjórna bæjarfélaginu næstu fjögur árin er að mínu mati óábyrg hegðun. Þú getur haft áhrif á það hvernig bæjarfélagið þitt verður næstu fjögur árin. Síðustu fjögur ár hefur Sjálfstæðisflokkurinn haft meirihluta í bæjarstjórn, þá voru bæjarbúar komnir með upp í kok á endalausu valdatafli, ringulreið og þvargi innan bæjarstjórnar. Ef sú staða kæmi upp í dag að 3-3-1 bæjarstjórn yrði raunin, þyrftir þú minn kæri kjósandi að bíða í heil FJÖGUR ár eftir því að fá að leiðrétta það ástand. Fjögur ár er mjög langur tími eins og síðasta kjörtímabil sýnir greinilega. Á þessum tíma hafa Vestmannaeyjar risið eins og Fönix úr öskunni… bókstaflega þessa dagana, og orðið stolt bæjarbúa. Ég get því sagt að í dag er ég ákaflega hreykin af því að geta kallað mig Vestmannaeying og þakka guði og gæfu fyrir að hafa leitt mig á þessar slóðir. Kæri kjósandi ég vona að þú sért líka jafn stoltur af Eyjunni okkar fögru og viljir ekkert nema það besta henni til handar. Því skaltu mæta á kjörstað á morgun og setja X við D.Hildur Sólveig Sigurðardóttir.
Meira
Súpa í hádeginu, Tjaldpartý í kvöld og nýjir Stofnar og Fylkir
í dag klukkan 12:00 verður borin fram hin hátíðlega kosningasúpa, að venju er það humarsúpa frá meistarakokkunum Herði Óskars og Jón Árna. Fjölmennum í Ásgarð og fáum okkur rjúkandi heita humarsúpu og takið spjallið við frambjóðendur. Meira
BarSvar í kvöld
Í kvöld höldum við áfram fjörinu á Volcano Café. BarSvar Eyverja hefur slegið í gegn og í kvöld mun bæjarstjórinn Elliði Vignisson stýra BarSvari. Elliði var nú kennari í Framhaldsskólanum og eflaust munu koma gamlar prófspurningar í kvöld. Endilega komdu við í kvöld klukkan 21:00 og taktu þátt í skemmtilegri spurningakeppni, tveir til þrír saman í liði. Vegleg verðlaun í boði.Meira
Hlustaðu - Hringitónn
Meira
Stefnuskráin rædd á laugardagsfundi
Laugardaginn 22 maí verður laugardagsfundur í Ásgarði eins og flesta laugardaga í vetur og haust.
Umræðuefni fundarins á laugardaginn verður stefnuskrá frambjóðenda Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum fyrir næsta kjörtímabil.
Allt áhugafólk um velferð Vestmannaeyja velkomið.
Sjálfstæðisfélögin í Vestmannaeyjum.
Meira
Hlustaðu
Eyverjar ásamt frambjóðendum Sjálfstæðisflokksins skelltu sér í hljóðver í dag og tóku upp lagið Hlustaðu, sönginn leiddi Silja Elsabet Brynjarsdóttir og fórst það vel úr hendi. Eyverjar eru hér halda uppteknum hætti því Rúnar Þór Karlsson sló í gegn fyrir fjórum árum með laginu XD. Þetta er fyrst og fremst til gamans gert og við vonum að allir njóti, lagið er hægt að sækja með því að smella hér.Meira
Stefnuskrá Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum
Meira
Framfarir á fjórum árum
Meira
Fylkir á netinu
Meira
Stofnar komnir út
Meira
BarSvar og opnun kosningaskrifstofu
Það er mikið að gerast hjá Sjálfstæðisflokknum í Vestmannaeyjum á morgun, fimmtudag. Kl:11:00 í fyrramálið munum við opna kosningaskrifstofu okkar í Ásgarði með glæsibrag. Við bjóðum ykkur upp á síðbúinn morgunmat eða svokallaðan brunch. Frambjóðendur verða á svæðinu til að hitta kjósendur, eitthvað skemmtilegt fyrir börnin, skemmtiatriði og fjölskylduskemmtun.Meira
Til hamingju Kiddi Páls

Meira
Um 100 manns mættu á MaggaMixQuiz - Myndir
Meira
Súpa á föstudögum í Ásgarði
Meira
Laugardagsfundur um skipulagsmál með Gunnlaugi Grettis
Gunnlaugur Grettisson, formaður Umhverfis- og skipulagsráðs og bæjarfulltrúi verður með erindi um skipulagsmál í Vestmannaeyjum í Ásgarði, laugardaginn 1.maí kl:11:00. Þar fjallar hann um áherslu á breytingar á tjaldsvæðinu við Þórsheimili og framkvæmdir í Herjólfsdal.Meira
MaggaMix Quiz
Laugardaginn 1.maí verður Pöbbquiz stemmngin í Ásgarði. Spyrill verður Maggi Mix sem er algerlega búinn að slá í gegn með sín ýmsu uppátæki, hann hefur samið frábær lög sem allir eru að raula þessa daganna og er með sinn eigin matreiðsluþátt á Facebook. Það verður því gaman að fá hann í heimsókn og hvetjum við alla 18 ára og eldri til að mæta og eiga góða kvöldstund með þessum snillingi.Meira
Laugardagsfundur í Ásgarði
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, hóf fundaröð í Valhöll á miðvikudaginn undir yfirskriftinni Sameinum krafta – byggjum upp. Næstu daga verða haldnir opnir fundir um land allt þar sem Bjarni ræðir við landsmenn og svarar fyrirspurnum um Rannsóknarskýrslu Alþingis.Meira
Eyverjacup 2010
Föstudaginn 23.apríl verður boðið uppá þvílíka fótboltaveislu !Eyverjacup verður haldið niðrá Friðarhöfn þar sem öllum er velkomið að taka þátt og sparkí bolta. Fótboltamótið hefst klukkan 17:00 og verða grillaðar pulsur og meðví fyrir viðstadda.
Refsingarnar verða ekki af verri endanum enda enginn annar en Trausti Hjaltason framkvæmdarstjóri ÍBV sem sér um dómgæslu !
það þarf að mæta í einhverjum búning! það verða líka nefnilega verðlaun fyrir flottustu búningana!
Eftir mótið verður svo blásið til þvílíkrar veislu í Ásgarði þar sem gleðin verður við völd.
Þeir sem vilja taka þátt skrá sig hér á síðu Eyverja á facebook í síðasta lagi fyrir Sumardaginn fyrsta.
Mótið er að sjálfsögðu frítt.
ps. heyrst hefur að Elliði bæjarstjóri ætli að láta sjá sig í takkaskónum hennar Berthu !
Meira
Silju-kvöld í eyverjasalnum
Við ætlum að hittast öll saman í Eyverjasalnum og styðja hana Silju okkar í anda... keppnin verður sýnd á skjávarpa og í boði verður snakk, ídýfur og gos Meira
Vestmannaeyjabær er eitt best setta sveitarfélag á landinu
Meira
Framboðslisti fyrir komandi sveitastjórnarkosningar

- Elliði Vignisson, bæjarstjóri
- Páley Borgþórsdóttir, lögmaður og formaður bæjarráðs.
- Páll Marvin Jónsson, líffræðingur og bæjarfulltrúi.
- Gunnlaugur Grettisson, viðskiptafræðingur og forseti bæjarstjórnar.
- Helga Björk Ólafsdóttir, kennari og leikskólakennari.
- Hildur Sólveig Sigurðardóttir, sjálfstætt starfandi sjúkraþjálfari.
- Trausti Hjaltason, stjórnmálfræðingur og framkvæmdastjóri.
- Arnar Sigurmundsson, framkvæmdastjóri.
- Hildur Zöega Stefánsdóttir, fiskverkakona.
- Þorbjörn Víglundsson, stýrimaður.
- Drífa Kristjánsdóttir, tryggingaráðgjafi.
- Guðmundur Huginn Guðmundsson, skipstjóri.
- Gígja Óskarsdóttir, framhaldsskólanemi.
- Leifur Ársælsson, útgerðarmaður.
Meira
Fundur með Heimssýn kl 20:00 í Akóges 31. mars
Meira
Eyverjar hugsa með pungnum
Eyverjar láta ekki sitt eftir liggja og styrkja gott málefni. Í kvöld fór fram söfnunin MottuMars á stöð 2 og hringdi formaður Eyverja, Borgþór Ásgeirsson, í Geir Jón Þórisson símadömu og fyrrverandi stjórnarmann í Eyverjum og styrkti málefnið um 50 þúsund krónur. Við Eyverjar hvetjum alla til að taka þátt og hringja inn og styrkja söfnunina. Enn er hægt að hringja í síma 755-5000 og gefa í söfnunina.Meira
Laugardagsfundur fellur niður vegna fermingarveislu í Ásgarði
Meira
Boggi þrítugur!!!
Meira
Laugardagsfundur með Benedikt Jóhannessyni
Benedikt er formaður nýstofnaðs félags, sjálfstæðir evrópumenn og ætlar að kíka á okkur á laugardaginn og spjalla um evrópumálin og þau mál sem brenna hvað heitast á okkur í Eyjum.Meira
Laugardagsfundur með Palla Magg og SUSarar í heimsókn
Páll Magnússon útvarpsstjóri er fæddur 17. júní 1954. Hann er sonur Magnúsar H. Magnússonar fyrrverandi bæjarstjóra og Filippíu Mörtu Guðrúnu Björnsdóttur. Páll var fréttastjóri Stöðvar 2 áður en hann tók við stöðu útvarpsstjóra árið 2005. Páll hefur efalaust frá ýmsu fróðlegu að segja.Þá ætla Eyverjar að halda sælkerakvöld í Ásgarði. Nokkrir stjórnarmenn úr sambandi ungra sjálfstæðismanna eru að heimsækja okkur, við ætlum að gera okkur glaðan dag og okkur langar að bjóða þér með! Hlaðborð, skemmtiatriði og góður félagsskapur. Gerist varla betra!
Endilega láttu okkur vita með einhverjum hætti ef þú vilt taka þátt.
Þeir sem hafa áhuga á að koma að allri dagskránni er nóg um að vera:
Meira
Laugardagsfundur með Jóhönnu Hauksdóttur
Meira
"Laugardags"fundur með Pétri H. Blöndal

Í kvöld fimmtudaginn 4. mars verður fundur í Ásgarði og hefst hann kl. 20.30.
Gestur fundarinns er enginn annar en Pétur H. Blöndal, Pétur er doktor í stærðfræði og alþingismaður Sjálfstæðisflokksins hann hefur setið í ýmsum nefndum þar á meðal; Efnahags- og viðskiptanefndar sem formaður, Félagsmálanefndar, Heilbrigðis- og trygginganefndar og Íslandsdeildar ÖSE sem formaður
Meira
Mætum og fellum Icesave lögin
Meira
Laugardagsfundur í Ásgarði

Laugardaginn 20 febrúar mun Greta Grétarsdóttir kynna starfsemi Eyjavíkur
Eyjavík er heildverslun fyrir alla...
Hjá okkur færð þú vörur er tengjast sjávarútvegi og útivist. Einnig er að finna úrval af vinnufatnaði, barnafatnaði, undirfatnaði o.fl.
Við erum staðsett í Vestmannaeyjum en seljum vörur um allt land. Með tilkomu netverslunarinnar er það von okkar að auðveldara verði fyrir fólk að skoða og panta vörur í gegnum netið.
Endilega hafið samband ef einhverjar spurningar vakna.
Kynningin hefst kl. 11.00 og síðan verður spjall um allt og ekkert.
Mætum og fáum okkur kaffi og meðlæti að hætti Jarls og Páleyjar.
Meira
Félag gegn fyrningarleið
Stofnað hefur verið áhugamannafélag í Vestmannaeyjum til að vinna gegn hugmyndum um fyrningu kvótans. Félagið er þverpólitískt en ungir Sjálfstæðismenn eru meðal stofnenda.Meira
Laugardagsfundur með Grími kokk
Laugardagsfundirnir halda áfram af fullum krafti og næsti gestur er Grímur Gíslason en hann ætlar að kynna fyrirtækið sitt Grímur kokkur. Kynningin hefst kl. 11.00 og síðan verður spjall um allt og ekkert.Mætum, hlustum, tölum og ef til vill smökkum.
Meira
Aðalfundur - Borgþór kjörinn formaður Eyverja
Borgþór Ásgeirsson var kjörinn formaður félagsins á árlegum aðalfundi sem var haldinn í gær, Borgþór sat sem varaformaður síðasta árið en hann tekur við af Sindra Ólafssyni. Leifur Jóhannesson var kjörinn varaformaður og sem meðstjórnendur voru þau kjörin: Margrét Rós Ingólfsdóttir, Helena Björk Þorsteinsdóttir, Gígja Óskarsdóttir, Hjalti Pálsson, Daði Ólafsson, Elín Sólborg Eyjólfsdóttir, Anna María Halldórsdóttir, Bragi Magnússon og Kristín Rannveig Jónsdóttir. Á fundinum var einnig samþykkt stjórnmálaályktun sem verður birt hér innan skamms.Meira
Laugardagsfundur með Binna í VSV
Þá viljum við líka minna á aðalfundur Eyverja 30. janúar kl. 17:00
Meira
Aðalfundur Eyverja 30. janúar kl. 17:00
Meira
Ályktun baráttufundarins - Þrír þingmenn mættu, allir frá Sjálfstæðisflokki
Fundurinn krefst þess jafnframt að fallið verði frá útflutningsálagi á ísfiski og afnámi sjómannaafsláttar, enda er með slíkum ráðstöfunum verið að skerða kjör þeirra sem málið varðar umfram það sem landsmenn verða að þola nú um stundir vegna efnahagssamdráttar í samfélaginu.
Boðað var til baráttufundarins undir yfirskriftinni Fyrnum fyrningarleiðina! Fundarboðendur voru meðal annars félög sjómanna, skipstjórnarmanna, útvegsmanna og vélstjóra, auk Vestmannaeyjarbæjar. Þetta segir allt sem segja þarf um sterka og víðtæka samstöðu Eyjamanna gegn áformum um fyrningarleiðina, þar með talið er svokallað skötuselsfrumvarp á Alþingi.
Íslenskt samfélag þarf síst á því að halda nú að höggvið sé að rótum sjávarútvegsins, þeirrar atvinnugreinar sem öðrum fremur skapar þjóðinni gjaldeyristekjur, stöðugleika og atvinnu landið um kring.
Fiskveiðistjórnarkerfið er vissulega umdeilt og það er ekki fullkomið frekar en önnur mannanna verk. Það er hins vegar og verður sameiginlegt verkefni stjórnmálamanna, og þeirra sem hagsmuna eiga að gæta, að fjalla sameiginlega um hugsanlegar breytingar á kerfinu í stað þess að stjórnvöld birti einhliða stríðsyfirlýsingar í garð fólks og fyrirtækja í atvinnugreininni.
Núna þarf sjávarútvegurinn fyrst og fremst á starfsfriði að halda til að unnt sé að efla hann og styrkja enn frekar þannig að hann standi örugglega undir því hlutverki sem honum er ætlað í þjóðarbúinu og við uppbyggingu samfélagsins eftir bankahrunið.
Samþykkt með lófataki á fundinum í Höllinni 21. janúar 2010
Meira
Baráttufundur í Höllinni í kvöld kl. 20:00
Á fundinum í kvöld verður spjótunum beint að fyrningarleið í sjávarútvegi, útflutningsálagi á ísfiski, afnámi sjómannaafsláttar og aðför að landsbyggðinni. Boðað er að stór hluti Eyjaflotans sigli til hafnar í tilefni af fundinum og má því búast við fjölmenni á fundinum. Fundarboðendur eru hagsmunasamtök sjómanna, útgerðarmanna og Vestmannaeyjabær.Meira
Stöndum saman - fundur í Ásgarði í kvöld með Unni Brá og Guðlaugi Þór
Meira
Aðalfundur Eyverja 2010
Meira
Fjölmennasta Grímuball sem haldið hefur verið í Vestmannaeyjum (Myndir)
Grímuball Eyverja var haldið síðastliðin föstudag og er óhætt að segja að mæting hafi verið vonum framar en grímuballið var einn af skemmtilegum viðburðum á glæsilegri þrettándahátíð í Vestmannaeyjum. Björgvin Þór Rúnarsson staðarhaldari Hallarinnar fullyrti að yfir 700 manns hefðu verið í húsinu þegar mest var, en þar með talinn er stór hópur foreldra og annarra fylgdarmanna. Búningarnir í ár voru sérstaklega glæsilegir og val dómnefndar ekki auðvelt því heimagerðu búningarnir voru sérstaklega mjög vandaðir og fjölbreyttir og greinilega mikið fyrir þeim haft.Meira
Stofnar komnir út
Meira
GRÍMUBALL EYVERJA
Meira
Gleðileg jól
Eyverjar óska lesendum, ásamt Eyverjum ungum sem öldnum, gleðilegra jóla og farsældir á komandi ári. Við þökkum einnig fyrir samstarfið á árinu sem er að líða og vonumst eftir frekara samstarfi á næsta ári. Við munum að sjálfsögðu halda áfram ótrauð að birta fréttir og pistla hér á Eyverjasíðunni á næsta ári og vonum að við lífgum aðeins upp á netflóru landsins með því.Meira
Stofnar á netinu
Meira
Eyverjar 80 ára
Sunnudaginn 20. desember kl. 15:00 ætla Eyverjar að bjóða í Heitt kakó og Kökur í Ásgarði í tilefni af 80 ára afmæli félagsins. Þar ætla Eyverjar á öllum aldri að hittast og fagna þessum áfanga með því að skiptast á sögum úr starfinu, einnig verða til sýnis gamlir munir, myndir og útgáfa félagsins.Meira
Laugardagsfundur Sjálfstæðisflokksins
Á morgun klukkan 11:00, laugardaginn 5.desember halda laugardagsfundir Sjálfstæðisflokksins áfram og verður gestur fundarins Ingi Tómas Björnsson. Hann ætlar að fjalla um fyrirhugaðar breytingar á sköttum og starfseminni hérna í Vestmannaeyjum. Endilega mætið og fáið ykkur rjúkandi heitan kaffibolla og með því til að slá á kuldahrollinn.Meira
Áhugaverðir tenglar
Það má segja að Eyverjasíðan hafi fengið gott start á þessu ári. Pistlar hafa birst nánast vikulega frá því að síðan opnaði í apríl síðastliðnum. Við erum þó stöðugt að þróa vefinn okkar og erum að reyna setja inn til dæmis gamla Stofna, bráðlega fleiri myndir og annað úr starfi félagins. Nýjasta er tenglasíðan okkar en þar erum við að einbeita okkur að því að hafa sem fjölbreytasta safn af tenglum. Okkur þætti vænt um ef þú, lesandi góður lumar á góðum eyjasíðum að senda okkur póst á eyverjar@eyverjar.is svo við gætum sett inn síðuna þína! Það er alltaf gaman að lesa skemmtilegt efni frá Eyjamönnum eða skoða myndir svo endilega sendu okkur tenglinn þinn og við reynum að koma honum fyrir á tenglasíðunni okkar.Meira
Viðburðaríkur laugardagur Eyverja
Nóg er um að vera hjá Sjálfstæðisfélögunum í Eyjum laugardaginn 28 nóvember næstkomandi. Klukkan 11:00 er hefðbundinn laugardagsfundur í Ásgarði og er gestur fundarins Arnar Sigurmundsson og fundarefnið er málefni lífeyrissjóða. Lífeyrissjóðsmál eru hitamál hjá þjóðinni og er hver og einn orðinn sérfræðingur í þessum málum. Það verður því eflaust spennandi fundur á laugardaginn þegar Arnar fer yfir málin og tekur við fyrirspurnum úr sal.Meira
Lauardagsfundur - Páll Marvin sem kynnir Sæheima og Sammi frá Örver sem kynnir starfsemi sína.
Á morgun, laugardag er fundur í Ásgarði kl:11:00 og fáum við góða gesti, Samúel Sveinn Bjarnason ætlar að koma og kynna fyrir okkur fyrirtæki sitt Örver. Einnig ætlar Páll Marvin að kynna fyrir okkur fyrirhugaða Sæheima. Að sjálfsögðu verður heitt á könnunni og eitthvað gott að narta með. Eyverjar og Sjálfstæðisfélagið í Vestmannaeyjum hvetja alla til að mæta á þennan fund sem verður á jákvæðu nótunum.Meira
Laugardagsfundur með Einari K. Guðfinnssyni
Á morgun, laugardag er fundur í Ásgarði kl:11:00 með Einar K. Guðfinnssyni fyrr. Sjávarútvegsráðherra. Það er ljóst að aðför vinstri stjórnar á lífæð Íslands er hafin. Sjávarútvegsmál skipta okkur Eyjamenn sem og aðra landsmenn miklu máli. Nú þegar er ljóst að með tillögum vinstri flokkanna um nýjar reglur um vigtun og skráningu sjávarafla muni koma sér afar illa fyrir sjómenn og útgerðarmenn í Vestmannaeyjum og þá allt samfélagið í heild. Eyverjar og Sjálfstæðisfélagið í Vestmannaeyjum hvetja alla til að mæta á þennan mikilvæga fund á morgun.Meira
Laugardagsfundur með Eyþóri Arnalds
Hinir margrómuðu laugardagsfundir Sjálfstæðisflokksins hafa svo sannarlega slegið í gegn. Laugardaginn næsta munu Eyverjar halda utan um fundinn og er fyrsti gestur Eyverja Eyþór Arnalds stjórnmálamaður, músíkant og frumkvöðull. Af sjálfsögðu verður heitt á könnunni og eitthvað gott að borða með og hvetjum við alla til að mæta og draga ömmu og afa, mömmu og pabba, frænkur, frændur og hvaða skyldmenni sem er á fundinn.Meira
Af ESB
Það skrítið að fylgjast með störfum ríkisstjórnarinnar þar sem ég held ég sé ekki sá eini sem klóra mér í hausnum og velti fyrir mér hvað það er sem hún hyggst ná fram í sinni stjórnartíð. Þegar Samfylkingarmenn eru spurðir þá vita allir svarið, það er að troða Íslandi inní hið heilaga Evrópusamband þar sem lífið er stórkostlegra en orð fá lýst. En það er nú samt meira atvinnuleysi þar en hér, „þrátt fyrir að hina sterku heild Evrópu“ hafi staðið af sér kreppuna með glæsibrag ef marka má talsmenn samspillingarinnar í Evrópumálum.Afleiðingar inngöngu í ESB er hægt að rífast um nánast endalaust þannig að við getum látið það bíða þar til að þessi blessaði samningur kemur heim. Því samnings skilyrðin sem Íslendingar setja fyrir aðild að undanskyldum 25% (m.v. Gallup) þjóðarinnar. Eru ekki á nokkurn hátt í samræmi við vinnubrögð Evrópusambandsins síðan að ríkjunum var fjölgað 1986 (þá EB) sem best sést á inngöngu Spánar. Þar sem varanlegar undanþágur tíðkast ekki svo heitið getur innan sambandsins þá beita öðrum aðferðum sem stundum eru nefndar leið Evrópusambandsins, sú leið byggjast upp á þremur megin trixum sem er beitt þegar risarnir í Evrópu vilja fá einhverju framgengt:
Meira
Laugardagsfundur með Bjarna Benediktssyni og Aðalfundur Kjördæmissamtaka ungra Sjálfstæðismanna í Suðurkjördæmi
Vikulegir Laugardagsfundir Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum halda áfram á morgun kl:11:00 eins og venja er og á morgun er góður gestur hjá okkur. Það er enginn annar en formaður Sjálfstæðisflokksins Bjarni Benediktsson. Eflaust hafa margir Eyjamenn sitthvað við hann að segja og hvetjum við alla til að koma og fá sér kaffi of með því og spyrja bjarna krefjandi spurninga.Meira
Opinn fundur um stöðu íslenska þjóðarbúsins, IceSave samningana og mögulegt þjóðargjaldþrot
Meira
Laugardagsfundur og gamlir stofnar
Laugardaginn næstkomandi, halda hinu margrómuðu laugardagsfundir Sjálfstæðisflokksins áfram. Gestur fundarins að þessu sinni verður Björn Bjarnason og hefst fundur kl:11:00. Að venju verður kaffi og með því.Meira
Hvað má betur fara? 556 milljarðar í útgjöld
Útgjöld ríkisins eru 556 milljarðar samkvæmt fjárlagafrumvarpinu hjá Steingrími og samstarfsfólki hans. Vinstri flokkarnir segjast ekki geta skorið niður, enda er alltaf einfaldasta lausnin hjá þeim að hækka skatta. Nýjir skattar á bæði fólk og fyrirtæki eru ekki þess tilfallin að koma okkur út úr kreppunni heldur bara leti leiðin til að fylla í fjárlagagatið. Það er eins og þeir nenna ekki að finna neinar aðrar leiðir.En ef fólk rennur aðeins yfir það í hvað peningar skattborgara eru að fara og hugsa sér að það er jafnvel hægt að skera niður í þessum málaflokkum um 5-10 % jafnvel sleppa þeim alfarið í 2-3 ár til þess að koma okkur út úr þessum vanda sem við eigum í dag. Í stað þess að hækka skattana má frekar bæta reksturinn og draga út útgjöldum. Þessi listi sem hér kemur að neðan er nánast ekkert tekið úr grunnstoðunum sem þó mætti alveg rekstrargreina og skoða raunverulega þörf fyrir hverja krónu í þeim geira. Listinn hér að neðan er til þess að gefa ykkur hugmynd um það sem peningar okkar fara í og hvort það mætti ekki draga eitthvað út umsvifum ríkisins. Í þessari upptalningu eru um það bil 45 milljarðar. Það má einnig spurja sig hvort það mætti ekki athuga frekar hugmyndir Sjálfstæðisflokksins um aðgerðir til að laga fjárlagahallan. Hugmyndir eins og breikkun skattstofna og skattleggja lífeyrissjóðsgreiðslur fyrirfram.
Meira
Laugardagsfundur Tryggvi Þór Herbertsson
Á laugardaginn 3. oktober verður fundi í Ásgarði og hefst hann kl. 11.00. Gestur fundarins verður Tryggvi Þór Herbertsson. Að vanda verður boðið uppá léttar veitingar og ánægjulega samveru.Fundurinn er öllum opinn.
Meira
Laugardagsfundur
Fundurinn er öllum opinn og léttar veitingar á boðstólnum.
Meira
Laugardagsfundur
Laugardagsfundir Sjálfstæðisfélagsins í samstarfi við Eyverja halda áfram næsta laugardag en stefnan er að hafa þessa fundi í allan vetur með ýmsum gestum. Þá gefst fólki tækifæri til að hitta á og spurja bæjarfulltrúa eða aðra gesti ofan af fastalandinu spjörunum úr. Síðasta laugardag mætti Þórlindur Kjartansson formaður SUS til Eyja og spjallaði við kaffigesti ásamt því að svara spurningum, líflegar umræður spruttu fram.Meira
Pöbbquiz og partý Eyverja
Vetrarstarf Eyverja byrjar formlega annað kvöld, laugardagskvöldið 12.september. Við ætlum að hrista saman hópinn í Pöbb Quiz sem Þórlindur Kjartansson formaður SUS mun stjórna. Öllum er að sjálfsögðu boðið að mæta í Eyverjasalinn annað kvöld klukkan 20:00. Stefnt er á því að byrja spurningarnar klukkan 20:30. Eftir spurningarnar og nokkra kalda er almenn gleði.Meira
Árni Helgason kjörinn formaður Heimdallar
Árni Helgason var í gærkvöldi réttkjörinn formaður Heimdallar, félags ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík, á aðalfundi félagsins í Valhöll. Árni eins og aðrir góðir menn á rætur sínar að rekja til Vestmannaeyja en faðir hans Helgi Bernódusson er fæddur og uppalinn í Eyjum þar sem hann gengdi meðal annars starfi bókavarðar.Anna Ásthildur Thorsteinsson, Diljá Mist Einarsdóttir, Einar Leif Nielsen, Guðmundur Egill Árnason, Hafsteinn Gunnar Hauksson, Helga Lára Haarde, Jan Hermann Erlingsson, Jóhanna Dýrunn Jónsdóttir, Jón Benediktsson, Sandra Hlín Guðmundsdóttir og Thelma Hrund Kristjánsdóttir.
Meira
Sjálfstæðisflokkurinn áfram stærstur
Sjálfstæðisflokkurinn mælist stærsti stjórnmálaflokkur landsins samkvæmt samkvæmt Þjóðarpúlsi Gallups. Fylgi stjórnarflokkanna eykst meðal kjósenda en 49% styðja ríkisstjórnina sem er örlítið fleiri en þegar síðast var spurt. Þetta kom fram í kvöldfréttum Ríkisútvarpsins. Fylgi við Sjálfstæðisflokkinn er hins vegar óbreytt 28,8% en flokkurinn fékk 23,7% í þingkosningunum 25. apríl.
Meira
Úteyjaferð Eyverja 2009
Innifalið:
bátsferð fram og til baka, grillaðar pylsur, varðeldur, gítarspil og Eyjastemmning eins og hún gerist best.
Heimferð kl. 21:00
Ferðalöngum er bent á að hafa meða sér eigin drykkjarföng, útivistarfatnað við hæfi og góða skapið.
Ef af veðurfarslegum ástæðum verður ekki hægt að fara út í Elliðaey höfum við undirbúið mettnaðarfullt plan-B
Meira
Illugi formaður og Ragnheiður Elín varaformaður
Illugi Gunnarsson, þingmaður og oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, var í dag kjörinn formaður þingflokks sjálfstæðismanna á fundi þingflokksins. Illugi gegndi stöðu varaformanns þingflokksins á síðasta kjörtímabili.Illugi fæddist á Siglufirði hinn 26. ágúst árið 1967. Hann útskrifaðist með B.Sc. gráðu í hagfræði frá Háskóla Íslands árið 1995, en síðar lauk hann MBA-prófi frá London Business School árið 2000. Hann var aðstoðarmaður Davíðs Oddssonar í forsætis- og utanríkisráðuneytinu frá 2000 til 2005. Hann vann í kjölfarið sem sjálfstætt starfandi hagfræðingur en tók sæti á þingi árið 2007 og var endurkjörinn sem þingmaður Reykvíkinga í kosningunum 25. apríl sl.
Ragnheiður Elín Árnadóttir, þingmaður og oddviti Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi, var kjörin varaformaður þingflokksins. Ragnheiður Elín kom einnig fyrst inn á þing árið 2007 eftir að hafa verið aðstoðarmaður Geirs H. Haarde í fjármála-, utanríkis- og forsætisráðuneytinu frá árinu 1998. Ragnheiður Elín fór fyrst inn á þing fyrir Suðvesturkjördæmi 2007 en færði sig um set núna og fór fram í Suðurkjördæmi. Hún er með BA-próf í stjórnmálafræði frá HÍ og MS-próf í alþjóðasamskiptum frá Georgetown-háskólanum í Bandaríkjunum.
Meira
Ný viðbót - Blogg
Við höfum bætt við flipanum Áhugaverð blogg undir "Greinar". Þar er ætlunin að hafa bloggsíður frá hinum og þessum einstaklingum sem hafa margt áhugavert að segja um lífið og tilveruna. Þar má núna finna meðal annars bloggsíður hjá Unni Brá, Karl Gauta og Elliða Vignis. Meira
Sjálfstæðisflokkurinn fékk 16 þingmenn í kosningunum
Sjálfstæðisflokkurinn hlaut 23,7% fylgi í kosningunum á laugardaginn og 16 þingmenn. Framan af kosninganóttinni voru iðulega fimmtán þingmenn inni en undir morgun datt Jón Gunnarsson inn sem uppbótarþingmaður í Suðvesturkjördæmi.Meira
Gleðilegan kjördag
Aldrei hefur verið mikilvægara að kjósa um bjarta og góða framtíð. Hvert atkvæði skiptir máli og því skiptir miklu að allir mæti og kjósi rétt.
XD
Við viljum minna fólk á kosningakaffið sem verður uppí höll frá klukkan 13:00 til 17:00
Einnig viljum við minna á fjörugustu kosningavöku landsins sem haldin verður á Valcano í kvöld.
Meira
Stofnar á netinu
Meira
Fundur með frambjóðendum í kvöld kl 20:00
Meira
Borgarafundur í kvöld á Rúv
Í kvöld fer fram Borgarafundur á Selfossi en þar eigast við Ragnheiður Elín oddviti Sjálfstæðismanna í Suðurkjördæmi ásamt oddvitar allra hinna flokkanna í Suðurkjördæmi. Við hvetjum alla til að fylgjast með fundinum en hann hefst strax að loknum fréttum í Ríkissjónvarpinu.Meira
Fundurinn með Bjarna Ben frestast
Fundur sem vera àtti í kvöld kl 20 í Ásgarði með Bjarna Benediktssyni formanni Sjàlfstæðisflokksins er frestað vegna ófærðar með flugi.
Morgunkaffi verður að venju í Àsgarði frà kl 9:30 alla virka dag fram að kosningum.
Meira
Göngum hreint til verks - opinn fundur með Bjarna Ben
Meira
Morgunkaffi í Ásgarði
Í morgun var fyrsti í morgunkaffi hjá Sjálfstæðisflokknum Í Ásgarði en fram að kosningum verður morgunkaffi alla virka daga kl:09:30. Þar eru allir velkomnir að gæða sér á góðu kaffi og jafnvel einhverju bakkelsi með og ræða um mál líðandi stunda. Endilega kíktu við og skoðaðu málefnin fyrir kosningarnar eða komdu bara í kaffi og spjallaðu um heima og geima.Meira
Erla Vídó heiðurs Eyverji
Sjálfstæðismenn í Vestmannaeyjum héldu í dag árlega eldriborgaraferð þar sem margt skemmtilegt var haft fyrir stafni. Hápunktur ferðarinnar var þegar Erla Vídó var sæmd nafnbótinni heiðurs Eyverji við virðulega athöfn í Ásgarði. Eyverjar afhentu Erlu viðurkenningarskjal og Eyverjapeysu af þessu tilefni.Meira
Vel heppnað skemmtikvöld Eyverja - Myndir
Meira
SKEMMTIKVÖLD EYVERJA
Kosningabarátta Eyverja hefst formlega með brjáluðu partý í Eyverjasalnum miðvikudagskvöldið 8.apríl. Við viljum sjá þig í brjáluðum gír að koma gleðjast með okkur og syngja þig sveitta með Jarli og félögum. Herlegheitin byrja kl. 21:00 og standa til miðnættis. Léttar veitingar í boði , meðan birgðir endast, fyrir þá sem eru rétt merktir :D
Meira
Lokaskýrslur Evrópunefndar og Endurreisnarnefndar aðgengilegar
Núna er hægt að nálgast lokaskýrslur Evrópunefndar og Endurreisnarnefndar sem landsfundur Sjálfstæðisflokksins samþykkti síðastliðna helgi. Skýrslurnar má nálgast á heimasíðu flokksins XD.is eða með því að smella hér.Meira
Myndir frá Landsfundi
Meira
Landsfundardagbók Dagur 3
Meira
Landsfundardagbók, kosið um ESB aðild
Kosið var um ályktun í afstöðu flokksins til Evrópusambandins á landsfundinum í dag eins og komið hefur fram í öðrum fjölmiðlum. Niðurstaðan var að farið verði í tvöfalda atkvæðagreiðslu, þar sem kosið verði um hvort fara eigi í aðilarviðræður. Önnur tillaga var lögð fram af Pétri Blöndal um að Sjálfstæðisflokkurinn hyggðist ekki leitast eftir viðræðum um aðild að Evrópusambandinu og tæki þannig afgerandi afstöðu til verndar þjóðarinnar.
Afstaða Eyverja í þessu máli var sú sama og Péturs Blöndal. Skýrar línur átti að setja í afstöðu flokksins í þessum efnum. Forsendurnar fyrir því eru ótal margar. Virkilega auðvelt er að rökstyðja að Ísland eigi ekki heima í sambandinu og að það sé engin framtíðar lausn.
Meira
Landsfundardagbók dagur 2
Fundarhöld hófust klukkan níu í morgun hérna í Laugardalshöllinni um evrópumál en Sjálfstæðisflokkurinn stofnaði til Evrópunefndar snemma í haust til þess að geta fjallað um þessi mál á Landsfundi sínum. Fyrir nefndinni fóru þeir Kristján Þór Júlíusson og Árni Sigfússon og skiluðu þeir áliti nefndarinnar í morgun. Meira
Landsfundardagbók Eyverja
Landsfundur Sjálfstæðisflokksins hefst í dag klukkan 17 í Laugardalshöll. Fundurinn hefst á að fagna stuttlega 80 ára afmæli flokksins, sem er í ár en síðan tekur við ræða Geirs H. Haarde, formanns flokksins, sem hefst klukkan 17.30. Athöfnin í dag er öllum opin en fundinum verður svo framhaldið föstudag, laugardag og sunnudag og taka þá fulltrúar á landsfundi þátt í störfum hans. Alls verða hátt í tvöþúsund fulltrúar á landsfundinum.Meira
Listinn
Sjálfstæðismenn í suðurkjördæmi héldu kjördæmisráðsþing á Selfossi laugardaginn 21. mars. Þar var samþykktur framboðslisti flokksins fyrir komandi kosningar. Auk Árna og Írisar sem skipa annað og fjórðasæti listans er kunnuglegt andlit í 17. sæti listans situr enginn annar en fasteigna- og tryggingasalinn Guðjón Hjörleifsson en Grímur Gíslason ákvað að taka ekki sæti á listanum, annars er endanlegi listinn svona:Meira
Fundarherferð Geirs H. Haarde með sjálfstæðismönnum um land allt
Fundur Geirs H. Haarde með Sjálfstæðismönnum í Vestmannaeyjum verður í Ásgarði í kvöld, mánudaginn 16.mars klukkan 20:00.
Allir Sjálfstæðismenn velkomnir
Meira
Úrslit
Ragnheiður Elín Árnadóttir mun leiða lista Sjálfstæðismanna í komandi kosningum.
Ragnheiður Elín fékk 2192 atlvæði í fyrsta sætið en Árni Johnsen 1300 atkvæði í fyrsta sætið.
Unnur Brá endaði í þriðja sætinu en Unnur er fyrsti varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins í suðurkjördæmi í dag.
Írís Róbertsdóttir náði frábærum árangri og endaði hún í fjórða sæti prófkjörsins með 1812 atkvæði í 1-4 sætið.
Endanleg niðurstaða var þessi:
Meira
Kjörgögn farin frá Eyjum
Kjörgögn fóru frá Vestmannaeyjum nú fyrir nokkrum mínútum og verður því talið á Selfossi í kvöld. Líklegt er að endanleg niðurstaða liggji fyrir í kringum miðnætti. Kjörsókn var með ágætum í Vestmannaeyjum og hljóðið í sjálfstæðismönnum almennt gott.Meira
Prófkjör
Í dag laugardaginn 14. febrúar ganga Sjálfstæðismenn að kjörborðinu og velja sér lista til að stylla upp fyrir komandi Alþingiskosningar sem fara fram 25. apríl næst komandi. Það er mikilvægt að sem flestir láti sjá sig og kjósi sitt fólk því einungis þannig getum við boðið uppá traustan lista í komandi baráttu. Eyverjar kvetja alla til að mæta láta skoðainr sínar í ljós, kjörstaður er opinn í ásgarði frá 10:00 til 18:00 í dag.Meira
Ný heimasíða Eyverja opnar
Ný og glæsileg heimasíða Eyverja opnar í dag föstudaginn 13.mars 2009. Við Eyverjar viljum bjóða örlögunum birginn með að opna heimasíðuna á þessum óhappadegi.Meira
Utankjörfundaratkvæði
Meira
Prófkjör.is
Meira









