Ályktun um ESB

Svohljóðandi ályktun var samþykkt á stjórnarfundi SUS þann 24. júní 2010:
 
Samband ungra sjálfstæðismanna skorar á stjórnvöld að draga umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu til baka sem fyrst.

Fyrir liggur að mikil andastaða er við aðildarumsóknina á þingi og ekki síst hjá þjóðinni. Ungir sjálfstæðismenn telja glórulaust með öllu að eyða meiri fjármunum í þetta áhugamál Samfylkingarinnar. Á tímum er stjórnkerfið þarf að einbeita sér að endurreisninni er fráleitt að það sé önnum kafið við þessa umsókn.

Þá skora Ungir sjálfstæðismenn á Landsfund Sjálfstæðisflokksins að taka þetta mál upp og hvetja fulltrúa flokksins á Alþingi til að beita sér í málinu, líkt og þingmaðurinn Unnur Brá Konráðsdóttir hefur gert.

Sjálfstætt og fullvalda Ísland hefur ávallt verið grunnstef sjálfstæðisstefnunnar og mun vera það um alla framtíð.
25. Jun. 2010 kl.08:29
Til baka...

Bookmark and Share