Goslokahátíð Eyverja
Eyverjar hafa alltaf verið frekar áberandi um goslokahátíð og það er engin undantekning þetta árið. Fjörið byrjar á fimmtudagskvöld á Volcano café þar sem Eyverjar halda sitt frábæra BarSvar og nú með eldgosaþema, það er því gott að vera með sögu eldgossins á Heimaey á hreinu til að eiga séns. Barsvar hefst tímanlega klukkan 21:00 og eru að sjálfsögðu vegleg verðlaun í boði fyrir sigurlið. Á laugardaginn verður síðan fjörinu haldið áfram en Eyverjar hafa undanfarin ár boðið ungum sjálfstæðismönnum af fastalandinu í heimsókn til sín á Goslokahátíð. Það verður engin breyting á því þetta árið. Aðsjálfsögðu er öllum Eyverjum boðið að taka þátt í dagskránni.
Goslokaskemmtun Eyverja dagskrá:
Kl 12.00 - Hádegismatur í Ásgarði, súpa, brauð og spjall við bæjarfulltrúa okkar
Kl 13.00 - skoðunarferð um eyjuna
Kl 14.30 - Heimsókn í Vesmannaeyskt fyrirtæki
kl:15:30 - Skoðunarferð um Surtseyjarstofu
kl:16:00 - Fylgst með Reimleikum 2010
kl:17:30 - Mæting á Smábátabryggjuna ef fólk ætlar með út í Löngu! -
Hér gerum við kröfu um 18 ára aldurstakmark og kostar 1500 krónur í
ferðina (ath ekki með posa)
kl:18.00 - Byrjað við að ferja fólk útí Löngu þar sem bíður grill,
gítarstemmning, varðeldur og leikir.
Kl 22.30 - Byrjað að flytja fólk tilbaka og stefnan sett á Skvísusund
þar sem verður tjúttað langt framá morgun
*Hvetjum alla til að mæta með lopapeysuna og góða skapið
*Hvetjum alla gítarleikara að mæta með gítar
Frekari upplýsingar um hátíðina er að finna á Facebooksíðu
http://www.facebook.com/event.

